508. fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 508. fundar síns fimmtudaginn 2. febrúar. Fundurinn er haldinn í fundarsal bæjarstjórnar, á annarri hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, og hefst kl. 17:00.

Beint streymi er af fundinum á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar og í spilaranum neðst á þessari síðu.

Dagskrá

Almenn mál

1. Reglur Ísafjarðarbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning - 2016120045
Tillaga bæjarstjóra um að bæjarstjórn samþykki reglur Ísafjarðarbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning, en drög að reglunum fengu umfjöllun á 464. fundi nefndarinnar, þann 8. september 2023, og á 468. fundi velferðarnefndar, sem fram fór 23. janúar 2023.

2. Stúdentagarðar Háskólaseturs Vestfjarða á Ísafirði - 2022100001
Tillaga bæjarráðs frá 1227. fundi, sem fram fór þann 23. janúar 2023, um að bæjarstjórn samþykki að veita Stúdentagörðum Háskólaseturs Vestfjarða hses., kt. 511022-0880, leyfi til að veðsetja lóðina að Fjarðarstræti 20, Ísafirði, ásamt þeim 40 almennu íbúðum sem þar munu koma til með að standa, með 1. veðrétti fyrir tryggingabréfi, ódags., að fjárhæð kr. 720.000.000, óverðtryggt til tryggingar á sérgreindri skuld skv. viðskiptasamningi, en kröfuhafi er Landsbankinn hf., kt. 471008-0280.

3. Rekstrarsamningur Félagsheimilisins á Suðureyri - 2022120023
Lögð fram tillaga bæjarstjóra um að samþykkja rekstrarsamning Ísafjarðarbæjar við Hollvinasamtök félagsheimilisins á Suðureyri, vegna félagsheimilisins.

4. Ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna Mjólkárlínu 2 - 2022090041
Tillaga frá 601. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 26. janúar 2023, um að bæjarstjórn heimili auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi vegna Mjólkárlínu 2, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og 2. gr. laga nr. 111/2021, um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

5. Hjúkrunarheimilið Eyri - viðbygging - 2020 - 2020040005
Tillaga frá 601. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 26. janúar 2023, um að bæjarstjórn samþykki valkost 3a vegna stækkunar á hjúkrunarheimilnu Eyri, auk þess sem lögð verði áhersla á að púttvöllur verði nýtanlegur að hluta á meðan á framkvæmdum stendur og uppbyggingu hans verði lokið samhliða framkvæmdum við nýja álmu.

6. Hjúkrunarheimilið Eyri - viðbygging - 2020 - 2020040005
Tillaga frá 601. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 26. janúar 2023, um að bæjarstjórn heimili málsmeðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

7. Dalbraut 1, eignaskiptayfirlýsing og lóðarleigusamningur - 2023010081
Tillaga frá 601. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 26. janúar 2023, um að bæjarstjórn heimili sameiningu lóðanna við Dalbraut 1a og 1b undir eina lóð, Dalbraut 1 í Hnífsdal undir tvo matshluta, vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar.

8. Sundstræti 28 á Ísafirði. Lóðarleigusamningur - 2022110113
Tillaga frá 601. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 26. janúar 2023, um að bæjarstjórn heimili útgáfu á lóðarleigusamningi undir fasteignina við Sundstræti 28 á Ísafirði.

9. Hafnarstræti 13 - Umsókn um lóðarleigusamning - 2022060145
Tillaga frá 601. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 26. janúar 2023, um að bæjarstjórn heimili útgáfu á nýjum lóðarleigusamningum við Hafnarstræti 13 og 15 á Flateyri miðað við framlögð gögn.

10. Kirkjubólsland - fyrirspurn um byggingarleyfi - 2023010067
Tillaga frá 601. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem haldinn var þann 26. janúar 2023, um að bæjarstjórn heimili stækkun lóðar við Kirkjubólslands L138012 í Engidal, Skutulsfirði með hliðsjón af tillögu.

Fundargerðir til kynningar

11. Bæjarráð - 1227 - 2301013F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1227. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 23. janúar 2023.
Fundargerðin er í ellefu liðum.

12. Íþrótta- og tómstundanefnd - 238 - 2301009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 238. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 18. janúar 2023.
Fundargerðin er í þremur liðum.

13. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 601 - 2301016F
Lögð fram til kynningar fundargerð 601. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 26. janúar 2023.
Fundargerðin er í níu liðum.

14. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 128 - 2301014F
Lögð fram til kynningar fundargerð 128. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en funduar var haldinn 25. janúar 2023.
Fundargerðin er í fjórum liðum.

15. Velferðarnefnd - 468 - 2301003F
Lögð fram til kynningar fundargerð 468. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 23. janúar 2023.
Fundargerðin er í þremur liðum.

16. Öldungaráð - 12 - 2203004F
Lögð fram til kynningar fundargerð 12. fundar öldungaráðs, en fundur var haldinn 6. mars 2022.
Fundargerðin er í fimm liðum.