499. fundur bæjarstjórnar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 499. fundar síns fimmtudaginn 6. október. Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, og hefst klukkan 17.

Streymi frá fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar eða í spilaranum hérna neðst.

Dagskrá

Almenn mál

1. Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - 2022050136
Tillaga frá bæjarstjóra um að fundur bæjarstjórnar skv. dagskrá þann 16. febrúar 2023, verði færður til 23. febrúar 2023, vegna vetrarfrís í skólum Ísafjarðarbæjar.

2. Endurskoðun húsnæðisáætlunar 2021 - 2021120009
Tillaga frá 1213. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 3. október 2022, um að bæjarstjórn samþykki Húsnæðisáætlun Ísafjarðarbæjar.

3. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2022 - 2022040056
Tillaga frá 1213. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 3. október 2022, um að bæjarstjórn samþykki viðauka 18 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2022, vegna verðbótahækkana, framkvæmdaáætlunar, sölu eigna og endurmat tekna.

4. Álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda 2023 - 2022090089
Tillaga frá 1212. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 26. september 2022, um að bæjarstjórn samþykki tillögu Örnu Láru Jónsdóttur, bæjarstjóra, um að útsvar Ísafjarðarbæjar 2023 verði óbreytt 14,52%.

5. Niðurfelling gatnagerðargjalda vegna byggingar íbúðarhúsnæðis - 2017050003
Tillaga frá 1213. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 3. október 2022, um að bæjarstjórn samþykki tillögu sviðsstjóra um sérstaka niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna þeirra lóða sem fram koma í minnisblaði sviðsstjóra, en sækja þarf þó sérstaklega um niðurfellingu til bæjarstjórnar í hverju tilfelli, með vísan til 6. gr. laga nr. 153/2006, um gatnagerðargjöld, sbr. og 7. gr. samþykktar Ísafjarðarbæjar um gatnagerðargjöld.

6. Ártunga 3 - umsókn um niðurfellingu gatnagerðargjalda - 2022100012
Tillaga frá 1213. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 3. október 2022, um að bæjarstjórn samþykki beiðni Teits Magnússonar um niðurfellingu gatnagerðargjalda af lóðinni Ártungu 3 á Ísafirði, enda er lóðin á lóðalista skv. minnisblaði sviðsstjóra, um sérstaka niðurfellingarheimild gatnagerðargjalda.

7. Hafnarstræti 25 og 26, Þingeyri. Umsókn um lóðir undir sjósundsaðstöðu - 2022030075
Tillaga frá 1213. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 3. október 2022, um að bæjarstjórn samþykki viljayfirlýsingu Ísafjarðarbæjar til handa Fasteignafélagi Þingeyrar vegna uppbyggingar sjósundsaðstöðu með gufuböðum og heitum pottum við Hafnarstræti á Þingeyri.

8. Boðgreiðslur - 2022090140
Tillaga frá 1213. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 3. október 2022, um að bæjarstjórn samþykki breytingar á þjónustu Ísafjarðarbæjar varðandi boðgreiðslur, og að breytingin taki gildi 1. janúar 2023.

9. Fundargerðir heilbrigðisnefndar og ýmis erindi 2022 - 2022020094
Tillaga frá 1213. fundi bæjarráðs, sem fram fór þann 3. október 2022, um að bæjarstjórn samþykki fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða 2023 til samþykktar í bæjarstjórn, en telur þó að verkefnið „Hreinir Vestfirðir 2023“ skuli unnið innan fjárhagsramma áætlunar 2023.

10. Hafnarstræti 15 - Ósk um óverulega deiliskipualgsbreytingu - 2022090131
Tillaga frá 593. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, sem fram fór þann 3. október 2022, um að bæjarstjórn samþykki að umsækjandi, Arctic Sea Farm og Jónína Sólveig Jónsdóttir, fái heimild til að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

Fundargerðir til kynningar

11. Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 192 - 2209004F
Fundargerð 192. fundar barnaverndarnefndar á norðanverðum Vestfjörðum lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 14. september 2022.
Fundargerðin er í þremur liðum.

12. Bæjarráð - 1211 - 2209015F
Fundargerð 1211. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 19. september 2022.
Fundargerðin er í tólf liðum.

13. Bæjarráð - 1212 - 2209021F
Fundargerð 1212. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 26. september 2022.
Fundargerðin er í 13 liðum.

14. Bæjarráð - 1213 - 2209028F
Fundargerð 1213. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 3. október 2022.
Fundargerðin er í 15 liðum.

15. Fræðslunefnd - 443 - 2209009F
Fundargerð 443. fundar fræðslunefndar lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 15. september 2022.
Fundargerðin er í átta liðum.

16. Fræðslunefnd - 444 - 2209016F
Fundargerð 444. fundar fræðslunefndar lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 22. september 2022.
Fundargerðin er í sex liðum.

17. Hafnarstjórn - 234 - 2209020F
Fundargerð 234. fundar hafnarstjórnar lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 27. september 2022.
Fundargerðin er í níu liðum.

18. Íþrótta- og tómstundanefnd - 234 - 2209017F
Fundargerð 234. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 21. september 2022.
Fundargerðin er í einum lið.

19. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 593 - 2209025F
Fundargerð 593. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 3. október 2022.
Fundargerðin er í átta liðum.

20. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 123 - 2209011F
Fundargerð 123. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 14. september 2022.
Fundargerðin er í einum lið.

21. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 124 - 2209024F
Fundargerð 124. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar lögð fram til kynningar en fundur var haldinn 28. september 2022.
Fundargerðin er í tveimur liðum.