Unnið að lagfæringu á tvöfaldri skuldfærslu

Vegna bilunar hjá Valitor eru nokkrir tugir húseigenda í Ísafjarðarbæ með tvöfalda skuldfærslu vegna fasteignagjalda um þessar mundir.
Fjármálasvið Ísafjarðarbæjar og Valitor vita af þessari villu og unnið er að því að lagfæra hana. Við biðjum fólk að sýna biðlund og biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.