Ungmennaráð Vestfjarða fundar með bæjarstjórn

Fulltrúar Ísafjarðarbæjar í Ungmennaráði Vestfjarða, Una Margrét Halldórsdóttir og Elna Kristín Líf Karlsdóttir, ásamt Ernu Leu Bergsteinsdóttur, verkefnastjóra Vestfjarðastofu, funduðu með bæjarstjórn 16. apríl 2026. Þar voru rædd ýmiss mál sem brenna á ungmennum sveitarfélagsins og Vestfjarða við bæjarfulltrúa.

Ungmennum þykir mikilvægast að stækka íþróttaaðstöðuna á Torfnesi þannig að allar íþróttir hafi betri aðgang og fleiri tíma, þá var rætt um að koma upp skólahreystibraut á Ísafirði, enda hafa ungmenni í Ísafjarðarbæ keppt í greininni á landsvísu með góðum árangri en eiga enga braut til að æfa sig í og þá þótti ungmennum mikilvægt að skipta kynjunum upp í sundhópum á unglingastigi, svo bæði kyn geti notið kennslunnar betur.

Rætt var um félagsmiðstöðvar og mikilvægi þess að bæta við spilum og endurnýja billjardkjuða og annan búnað, auk þess sem tíðari almenningssamgöngur væru nauðsynlegar, bæði fyrir alla kjarna og tíðari ferðir, enda sækja ungmenni ýmist félagsstarf hjá félagsmiðstöð, öðrum félagasamtökum og kirkjunni, alla daga vikunnar, og ekki síður um helgar.

Síðast en ekki síst var lögð áhersla á að endurvekja ungmennaráð hjá Ísafjarðarbæ.