Tímabundin breytt aðkoma að Tunguhverfi og Skeiði

Mynd :map.is
Mynd :map.is

Vegna framkvæmda við heitavatnslögn í jörðu við Orkubú Vestfjarða á Skeiði þarf að loka tímabundið innkomu að Tunguhverfi og Skeiði við gatnamót Djúpvegar/Tungubrautar, síðar í dag. 

Ný innkoma verður af Djúpvegi og beint inn á bifreiðastæði við Bónus á Skeiði. 

Gert er ráð fyrir að vinna taki nokkra daga og ætti að ljúka í næstu viku. 

Ökumenn eru vinsamlegast beðnir að aka með varúð.