Takmörkun á lagningu bifreiða í Sundstræti 1. til og með 18. ágúst 2023

Vegna framkvæmda við fyrirstöðugarð við Norðurtanga á Ísafirði mun verða mikil umferð grjótflutningabíla eftir Sundstræti frá 1. ágúst til og með 18. ágúst. Á sama tíma er unnið að viðhaldi á Fjarðarstræti og því ekki hægt að beina þungaumferð þar um. 

Til að umferðin um Sundstrætið gangi sem hraðast og öruggast fyrir sig eru ökumenn beðnir um að leggja ekki sjávarmegin í Sundstrætinu á milli kl. 08.00 og 18.00 virka daga á umræddu tímabili. 

Einnig verður lokað fyrir bílastæðin sem eru í Norðurtanganum nema þau bílastæði sem eru við og fyrir Fjarðarstræti 2, 4 og 6. 

Þökkum kærlega fyrir tillitsemina.