Skrifstofa bæjarstjóra á Gullkistunni á Suðureyri

Föstudaginn 7. ágúst verður líf og fjör á Suðureyri þegar Gullkistan Vestfirðir býður heim í opið hús hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu. Gestum gefst kostur á að kynnast fjölbreyttri starfsemi, hitta heimafólk og njóta þess sem Suðureyri hefur upp á að bjóða.

Ísafjarðarbær tekur þátt í dagskránni og býður gesti velkomna á nokkra staði á Suðureyri. Á höfninni verður hægt að stíga á gömlu hafnarvogina og vigta sig,  upplifun fyrir alla aldurshópa. Í Sundlauginni á Suðureyri verður frír aðgangur og boðið upp á ís og kaffi á bakkanum.

Þá verður bæjarstjórinn með opið hús í Sunnuhlíð, Aðalgötu 2, frá kl. 12:00–15:00, þar sem íbúar og gestir geta komið við í spjall, komið á framfæri hugmyndum eða spurt um málefni sveitarfélagsins.

Fjölmörg fyrirtæki á Suðureyri taka einnig þátt í deginum, meðal annars Klofningur, Fisherman Travel ehf., Fiskur ehf., Þorrfiskur frá Suðureyri og Act Alone, sem býður upp á sérstaka dagskrá.

Einnig verða Fiskvinnslan Íslandssaga hf. og Norðureyri útgerð með opið hús frá kl. 9:00–15:00, þar sem boðið verður upp á leiðsögn um vinnsluna kl. 11:00 og 14:00.

Ísafjarðarbær hvetur íbúa og gesti til að nýta tækifærið, heimsækja Suðureyri og taka þátt í skemmtilegum degi þar sem atvinnulíf, samfélag og gestir koma saman.