Nú er tíminn til að sækja sólmyrkvagleraugun

Almyrkvi á sólu verður miðvikudaginn  12. ágúst  og nú hvetur Ísafjarðarbær íbúa til að sækja sólmyrkvagleraugun sín í dag eða á morgun, áður en myrkvinn hefst.

Sólmyrkvagleraugu eru nauðsynleg til að fylgjast með sólmyrkvanum á öruggan hátt. Venjuleg sólgleraugu veita ekki næga vörn og geta ekki komið í stað vottaðra sólmyrkvagleraugna.

Hægt er að sækja gleraugun á opnunartíma á eftirfarandi stöðum:

  • Sundlaugum Ísafjarðarbæjar
  • Bókasafni Ísafjarðar
  • Bæjarskrifstofunni í Stjórnsýsluhúsinu

Við hvetjum íbúa til að bíða ekki fram á síðustu stundu heldur sækja gleraugun í dag eða á morgun og vera þannig vel undirbúin fyrir þennan einstaka náttúruviðburð.

Nánari upplýsingar um örugga notkun sólmyrkvagleraugna og góð ráð vegna almyrkvans má finna á:

Öryggi og augnheilsa – Almyrkvi 2026 á Ísland.is