Lokað vegna bilunar í Flateyrarlaug

Vegna bilunar þarf að loka sundlauginni á Flateyri í nokkra daga. Ekki er vitað hversu lengi viðgerð mun standa yfir en vonir standa til að verkið klárist í lok þessarar viku eða byrjun næstu. Tilkynnt verður um opnun hér á vefnum en einnig er gott að fylgjast með Facebook-síðu sundlaugarinnar, Sundlaugin á Flateyri.