Kjörfundur í Ísafjarðarbæ

Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Ísafjarðarbæ verður haldinn þann 26. maí 2018. Kjörfundur hefst kl. 09:00 í öllum kjördeildum og stendur til kl. 21:00 í 1.-3. kjördeild en til kl. 20:00 í 4.-6. kjördeild. Kosið verður á eftirtöldum stöðum:

1.-3. kjördeild í Menntaskólanum á Ísafirði

4. kjördeild í Grunnskólanum á Suðureyri

5. kjördeild í Grunnskóla Önundarfjarðar á Flateyri

6. kjördeild í Félagsheimilinu á Þingeyri

Kjörskrá liggur frammi til kjördags á skrifstofu Ísafjarðarbæjar í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1 Ísafirði. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað. Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður í Menntaskólanum á Ísafirði. Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 450-4407. 

 

Yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar

Hildur Halldórsdóttir  formaður

Aðalbjörg Sigurðardóttir

Björn Davíðsson