Ísafjarðarbær hlýtur tæplega 107 milljón króna styrk úr Fiskeldissjóði

Fiskeldissjóður auglýsti styrki til umsóknar fyrr á árinu. Alls bárust 25 umsóknir að heildarfjárhæð um 1,4 milljarður króna. Stjórn Fiskeldissjóðs hefur ákveðið að veita styrki til 14 verkefna í sex sveitarfélögum, samtals að fjárhæð 554 milljónir króna.

Ísafjarðarbær sótti um styrki í fimm verkefni sem öll eru á framkvæmdaáætlun ársins 2026:

  • Bygging slökkvistöðvar
  • Endurnýjun snjótroðara á Skíðasvæði Ísafjarðarbæjar
  • Flóðlýsing á keppnisvellinum á Torfnesi
  • Ný skólalóð við leikskólann Sólborg á Ísafirði
  • Tankbíll fyrir slökkvilið Ísafjarðarbæjar

Í dag voru niðurstöður stjórnar Fiskeldissjóðs lagðar fram til kynningar í bæjarráði Ísafjarðarbæjar.

Jákvæð niðurstaða fékkst við umsókn um byggingu slökkvistöðvar, alls að fjárhæð kr. 106.812.339.

Þetta eru afar ánægjulegar fréttir!