Hrönn Garðarsdóttir ráðin verkefnisstjóri á Flateyri

Hrönn Garðarsdóttir hefur verið ráðin sem verkefnisstjóri á Flateyri og mun hún sinna því starfi frá 1. júlí n.k. til loka júnímánaðar 2024. Hlutverk verkefnisstjóra er að leiða nýsköpunar- og þróunarverkefni á Flateyri, í samstarfi við verkefnisstjórn á grundvelli samnings milli samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Ísafjarðarbæjar og Vestfjarðarstofu.
 
Hrönn lauk námi frá Háskólanum á Akureyri árið 2006 með B.Ed. gráðu í leikskólafræðum og er með leyfisbréf sem leikskóla- og grunnskólakennari. Hún lauk M.Ed. gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum, með áherslu á sérkennslufræði frá Háskóla Íslands árið 2015.
 
Hrönn starfaði sem deildarstjóri við leikskólann Stekkjarás frá 2005 til 2011, sem sérkennari við Setbergsskóla og Hraunvallaskóla 2011 til 2014 og sem deildarstjóri í Setbergsskóla 2014 til 2016. Frá 2016 til 2021 starfaði hún svo sem umsjónar- og sérkennari í Hraunvallaskóla áður en hún tók við starfi skólastjóra við Grunnskólann á Suðureyri í ágúst 2021 sem hún hefur sinnt til dagsins í dag.
 
Við bjóðum Hrönn hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.