Hreyfivika í Ísafjarðarbæ

Í næstu viku standa Ungmennafélag Íslands og Ísafjarðarbær fyrir hreyfiviku í sveitarfélaginu. Ókeypis verður í sundlaugar Ísafjarðarbæjar þessa daga, þ.e.a.s. 28. maí t.o.m. 3. júní.

Dagskrá hreyfiviku:

Sunnudagur 27. maí...
Kl. 10.00 FunRun á vegum Ægis, nemendafélags Háskólaseturs Vestfjarða.
Komið og hlaupið, skokkið, gangið eða sleppið þessum 5,8 km klædd sem uppáhalds sjávardýrið ykkar! Þátttaka er ókeypis en þátttakendur eru hvattir til að styrkja Björgunarfélag Ísafjarðar (SAR) og skráningar er krafist við komu. Skráning er möguleg frá [8:00 am-9:55am] við rásmarkið (fyrir framan bókasafnið). https://www.facebook.com/events/792875787584036/

Mánudagur 28. maí
Kl. 06.00 Gönguferð upp í Naustahvilft á vegum Gönguhóps Ferðafélags Ísfirðinga. Lagt af stað kl. 6 frá bílaplani neðan Hvilftar.
Kl. 18.15 Prufutími hjá hlaupahópnum Riddarar Rósu. Æfingar henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Mæting við íþróttahúsið á Torfnesi.

Þriðjudagur 29. maí
Kl. 17.00 Létt fjallahjólaferð með Gullrillunum, mæting við Íþróttahúsið Torfnesi.
Hjólað verður upp Skíðaveginn upp að Skíðheimum og svo fjallabaksleiðina til baka með ýmsum krókum og klækjum. Gullrillur sjá um leiðsögn, leiðarval og tæknileiðbeiningar. Hvetjum alla til að mæta. Ferðin ætti að henta öllum, bæði byrjendum í fjallahjólreiðum sem lengra komnum. Fjallahjól með framdempun henta vel í ferðina og svo allir með hjálm á hausnum svo toppstykkið verði í lagi. Þetta gæti verið byrjunin að frábæru fjallahjólasumri

Miðvikudagur 30. maí
Kl. 18-19:00 Útijóga í Blómagarðinum á Austurvelli. Jóga-Ísafjörður býður bæjarbúum í jóga. Þátttakendum er bent á að taka með sér dýnu eða teppi.

Fimmtudagur 2. Júní
Kl. 18.15 Prufutími hjá hlaupahópnum Riddarar Rósu. Æfingar henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Mæting við íþróttahúsið á Torfnesi.

Laugardagur 2. júní
Kl. 9.30 Prufutími hjá hlaupahópnum Riddarar Rósu. Æfingar henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Mæting við íþróttahúsið á Torfnesi.
Kl. 10.00 Samflot í Sundlaug Bolungarvíkur milli kl. 10:00 og 11:00.
„Einstök slökun í þyngdarleysi vatnsins í hugljúfu tónaflóði og lífsljósið logar skært sem aldrei fyrr.“

Sunnudagur 3. júní
Kl. 11.00 Kajakróður með Sæfara á Pollinum. Félagsmenn Sæfara veita leiðsögn og sjá um fararstjórn. Leiga á búnaði 2.000 kr.