Götulokanir á Þingeyri vegna lagnaframkvæmda
21.07.2026
Fréttir
Vegna framkvæmda við fráveitu eru tímabundnar götulokanir á Þingeyri sem geta haft áhrif á umferð um svæðið, í dag þriðjudaginn 21. júlí og fram í næstu viku.
Þeir sem eiga leið að tjaldsvæðinu, sundlauginni eða heilsugæslunni eru beðnir um að aka um Brekkugötu.
Áætlað er að framkvæmdum og tilheyrandi götulokunum ljúki í lok næstu viku, ef allt gengur samkvæmt áætlun.
Við biðjum vegfarendur að sýna aðgát á framkvæmdasvæðinu, fylgja merkingum og virða lokanir meðan á framkvæmdum stendur.
Við þökkum fyrir þolinmæði og skilning á meðan unnið er að nauðsynlegum endurbótum á veitukerfinu.