Dagur leikskólans miðvikudaginn 6. febrúar kl 15.00

Miðvikudaginn 6. febrúar nk. verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins í tólfta sinn, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Leikskólar landsins hafa á undanförnum árum haldið upp á dag leikskólans með margbreytilegum hætti og þannig stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarfið.

Allir sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, eru hvattir til að halda degi leikskólans á lofti og fylgjast vel með starfsemi leikskólanna þennan dag.

Börn og starfsfólk í Leikskólanum Sólborg ætlar að gera sér dagamun og vera með opið hús eða réttara sagt opinn garð kl 15.00, til að kynna okkar mikilvæga starf sem þar fer fram. Við munum bjóða foreldrum og börnum upp á ýmiskonar fjör eins og t.d. hópleiki, renna á hólnum, jógaæfingar í snjó og fl. Einnig verður boðið upp á útikakó og kringlur :) Við viljum hvetja foreldra og systkini að koma vel klædd og við hæfi og fagna þessum degi með okkur í útiverunni.

Þessi auglýsing á einnig við um Leikskóladeildina okkar á Tanga, þar sem þau verða einnig með útikakó og leiki hjá sér við Austurveg.

Látum dag leikskólans verða okkur hvatning til jákvæðri umræðu um leikskólastarfið og frekari samstarfs milli heimili og leikskóla.

Verið velkomin