Dagbók bæjarstjóra 2026: Vika 55

Dagbók bæjarstjóra dagana 19.–25. janúar 2026, í 55. viku í starfi.

Sumarfrí.

Eins og ég sagði ykkur fyrir viku þá er ég í tveggja vikna fríi. Vika eitt liðin þar sem við dvöldum í Suður-Týról í ítalska bænum Dobbiaco en á þýsku er hann þekktur undir heitinu Toblach. Þar var gengið á skíðum, farið víða, í allskonar brautir, dali og þorp. Félagsskapurinn var æði, hópur frá Bændaferðum en með okkur voru góðir vinir þau Helga og Bjössi úr Mosó, en svo kynntumst við fullt af góðu fólki sem við eigum vonandi eftir að hitta aftur.

Núna erum við millilent í Amsterdam. Seinni viku frísins verður varið á Spáni.

Heyrumst eftir viku!

Afsakið, engir myndatextar í þetta sinn.