553. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn kemur saman til 553. fundar fimmtudaginn 15. maí kl. 17.
Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.

Dagskrá

Almenn mál

1. Ársreikningur Ísafjarðarbæjar 2024 - 2025020192
Bæjarstjóri leggur fram til síðari umræðu Ársreikning Ísafjarðarbæjar, stofnana hans og fyrirtækja fyrir starfsárið 2024.

2. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025 - 2025020006
Tillaga frá 1325. fundi bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. maí 2025, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka 11 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2025, vegna aukins kostnaðar í rekstri Grunnskólans á Ísafirði.
Kostnaður er alls kr. 21.316.305 en honum er mætt með tilfærslu á öðrum deildum A hluta. Nauðsynlegt er að uppfæra tölvubúnað og öryggisbúnað fyrir hærri fjárhæð en áætlað var, eða kr. 7,7 m.kr. Aukið svigrúm er nauðsynlegt í kaffi- og matarkostnaði, og kostnaður vegna skólaaksturs er hærri en áætlað var. Þá var samið við ræstifyrirtæki um þrif vegna breyttra forsendna í starfsmannahaldi og kostnaður ársins áætlaður um 8 m.kr. fyrir árið. Samanlagt aukinn kostnaður við GÍ nemur 21,3 m.kr. og er því mætt með hagræðingu á öðrum deildum A hluta.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er því kr. 0,-
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma kr. 223.000.000.
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0,- eða óbreytt afkoma kr. 995.000.000.

3. Gjaldskrár skólaárið 2025-2026 - 2025030220
Tillag frá 22. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 7. maí 2025, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrár leikskóla, dagforeldra, dægradvalar og íþróttaskóla fyrir skólaárið 2025-2026 til bæjarstjórnar til samþykktar.
Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að gjaldskrá fyrir skólamat verði breytt á þann veg að þar standi "Í öllum grunnskólum Ísafjarðarbæjar er boðið upp á hressingu á morgnanna og hádegismat, án endurgjalds." Einnig leggur hún til að tímagjald leikskóla og máltíðir hækki um 4% en leggur jafnframt áherslu á að rukkað er fyrir 204 skóladaga. Áfram er greitt sérstaklega fyrir skráningardaga.

4. Endurskoðaðir samningar við skólasálfræðinga - 2025 - 2025040195
Tillag frá 22. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 7. maí 2025, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja samningum Ísafjarðarbæjar við skólasálfræðinga.

5. Endurskoðaður samstarfssamningur 2025 - 2025040175
Tillag frá 22. fundi skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, sem haldinn var 7. maí 2025, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja samning Ísafjarðarbæjar við Rannsóknir og greiningu ehf.

Fundargerðir til kynningar

6. Bæjarráð - 1325 - 2505006F
Lögð fram til kynningar fundargerð bæjarráðs, en fundur var haldinn 12. maí 2025.
Fundargerðin er í 11 liðum.

7. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 22 - 2504017F
Lögð fram til kynningar fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 7. maí 2025.
Fundargerðin er í 10 liðum.