Wakeboarding Iceland – Sumarstarf á bílaleigu og sem leiðsögumaður

Fyrir komandi sumartímabil leitumst við í okkar fámenna starfshópi á Ísafirði eftir áreiðanlegum, samskiptafærum og áhugasömum sumarstarfsmanni.

Starfið er fjölbreytt og krefst athafnasemi þar eð starf á bílaleigu er sameinað leiðsögustarfi. Meðal þeirra ferða sem við bjóðum upp á eru fjallgöngur, standandi brettaróður (e. stand-up paddleboarding (SUP)) og sérsniðnar einkaferðir á Vestfjörðum.

HELSTU VERKEFNI Á BÍLALEIGUNNI

  • Þrífa og þvo ökutæki
  • Fylla eldsneyti á ökutæki
  • Afhenda ökutæki og aðstoða viðskiptavini
  • Svara tölvupóstum og eiga í samskiptum við aðalskrifstofu
  • Halda utan um viðhald ökutækja og sendingar til vélvirkja
  • Upplýsa viðskiptavini um Vestfirði, ástand vega og ferðaráð

HELSTU VERKEFNI LEIÐSÖGUMANNS

  • Leiða gönguferðir og brettaróðrarferðir
  • Taka á móti gestum og skapa afslappaðar, öruggar og skemmtilegar aðstæður
  • Miðla staðbundnum fróðleik um náttúru, menningu og Vestfirði almennt

SÁ SEM VIÐ LEITUMST EFTIR

Nauðsynleg hæfni:

  • Samskiptafærni, áreiðanleiki og skipulagshæfni
  • Eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt og með öðrum
  • Ökuréttindi (beinskipting og sjálfskipting)
  • Góð Enskukunnátta og Íslenskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
  • Vel að sér um Vestfirði (eða mikill áhugi á að læra fljótt)
  • Hreysti og þróttur til að sinna líkamlegri vinnu utandyra

Æskileg hæfni:

  • Reynsla af þjónustu við viðskiptavini, ferðaþjónustu og leiðsögn
  • Fyrri störf hjá bílaleigu eða fyrirtæki á sviði ferðaþjónustu eða útivistar
  • Kunnátta á öðrum tungumálum er mikill kostur
  • Hafa gilt Vettvangshjálp í óbyggðum (WFR) skírteini eða sambærileg réttindi tengt því að veita fyrstu hjálp

ÞAÐ SEM VIÐ BJÓÐUM UPP Á

  • Fjölbreytt og félagslegt sumarstarf
  • Unnið er bæði innan- og utandyra
  • Lítill og vinalegur starfshópur í afslöppuðu umhverfi á Vestfjörðum
  • Líflegt sumar þar sem þú hittir fólk alls staðar að úr heiminum.

Staðsetning: Ísafjörður, Vestfirðir

Tímabil: Sumar (nánara tímabil eftir samkomulagi)

Umsóknarfrestur: 9. mars

Nánari upplýsingar veitir:

Justas Suscickis, justas@wakeboardingiceland.com

Er hægt að bæta efnið á síðunni?