Verkefnastjóri farsældar – Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar 100% starf verkefnastjóra farsældar. Leitað er að kröftugum einstaklingi með ríka þjónustulund, skipulagshæfileika sem sýnir frumkvæði og metnað í starfi. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í hópi, ásamt því að vera sjálfstæður í verkefnum þegar þörf krefur. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Næsti yfirmaður er deildarstjóri í málefnum fatlaðra.
Ísafjarðarbær er leiðandi sveitarfélag í málefnum fatlaðra og barnaverndarþjónustu. Aðildarsveitarfélögin eru öll sveitarfélög á Vestfjörðum sem starfa saman á grundvelli samnings um sérhæfða velferðarþjónustu á Vestfjörðum. Auk þess sem talið er upp hér að neðan gæti verkefnastjóri komið að samvinnu við aðildarsveitarfélögin vegna málefna fatlaðra og farsældarráðs.
Velferðarsvið býður meðal annars upp á:
- Þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki
- Góðan starfsanda
- Sveigjanlegan vinnutíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur yfirumsjón með samþættingu á þjónustu hjá velferðarsviði og skóla- og tómstundasviði í samræmi við lög um farsæld barna
- Er fulltrúi velferðarsviðs í þjónustuteymi farsældar
- Tekur að sér málsstjórn á 2. stigi samþættingar í málefnum fatlaðra
- Situr fundi er snúa að samræmingu samþættrar þjónustu á svæðinu og stýrir þeim fundum
- Eflir samvinnu, samþættingu og upplýsingaflæði á milli þjónustuveitenda í sveitarfélaginu með áherslu á snemmtæka íhlutun og vinnur að þróun nýs verklags
- Sér um kynningu og fræðslu á áherslum hugmyndafræði samþættingar fyrir alla sem að farsældinni koma
- Er í samstarfi og samvinnu við þjónustuveitendur sem vinna með börnum og koma að samþættingu þjónustunnar
- Vinnur árangursmat á verklagi og þjónustu
- Tekur virkan þátt í vinnu innleiðingarteymis í samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna
- Virkt samráð við svæðisbundna þjónustuveitendur á vegum ríkis og sveitarfélaga sem og fulltrúa notenda á svæðinu
- Umsjón með skilum á upplýsingum til farsældarráðs Vestfjarða
- Sinnir ráðgjöf og veitir þjónustu sem fellur undir þjónustu við fatlað fólk í samvinnu við deildarstjóra
- Tekur þátt í mótun tengslanets farsældarmála milli landshlutasamtaka sveitarfélaga og annað sem fellur að tilgangi verkefnisins
Menntun og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði velferðar-, félags-, mennta- og heilbrigðismála
- Framhaldsnám og/eða starfsreynsla í verkefnisstjórnun og teymisvinnu kostur
- Farsæl reynsla og þekking af vinnu og þjónustu sem varðar velferð barna.
- Þekking og reynsla af starfi í almennri velferðarþjónustu eða af skólastarfi í grunn- og leikskóla
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af vinnu í opinberri stjórnsýslu er kostur
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Framúrskarandi hæfni í íslensku og ensku, töluðu og rituðu máli (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma)
- Góð almenn tölvufærni
- Áhugi og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2026. Umsóknum skal skilað til Þóru Marý Arnórsdóttur, deildarstjóra í málefnum fatlaðra á thoraar@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt afriti af prófskírteinum. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóra í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Við þjónum með gleði til gagns