Velferðarsvið – Stuðningsfulltrúi í búsetuþjónustu
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í búsetuþjónustu fatlaðs fólks. Um er að ræða 60% starf í vaktavinnu. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Óskað er eftir jákvæðri og drífandi manneskju sem hefur ánægju af samskiptum en starfið er afar fjölbreytt og gefandi. Næsti yfirmaður er forstöðumaður búsetuþjónustu.
Helstu verkefni
- Aðstoða þjónustunotendur við athafnir daglegs lífs
- Félagslegur stuðningur
- Góð samskipti og samstarf við þjónustunotendur og aðstandendur
- Þátttaka í starfsmannafundum og samvinna við samstarfsfólk
- Framfylgja vinnureglum sem ákveðnar eru og stuðla með því að samræmdum vinnubrögðum
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Samviskusemi og stundvísi
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Frumkvæði og þolinmæði
- Góð íslenskukunnátta
- Bílpróf
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).
Umsóknarfrestur er til og með 14. mars 2025. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið ragnhildursv@isafjordur.is. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Inga Sveinsdóttir, forstöðumaður í búsetu í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-