Vegagerðin — Þjónustufulltrúi í umferðarþjónustu

Hefur þú áhuga á því að hjálpa vegfarendum að komast örugglega ferðar sinnar, allt árið um kring?

Umferðarþjónustan á Ísafirði er hluti af deildinni Vöktun og upplýsingar á þjónustusviði Vegagerðarinnar. Alls starfa um 7 þjónustufulltrúar á umferðarþjónustu á Ísafirði.

Þjónustufulltrúar hafa jákvætt hugarfar, vinna þétt saman og geta haldið ró sinni í krefjandi aðstæðum. Þau eru skipulögð og sjálfstæð í vinnubrögðum ásamt því að búa yfir framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.

Starf þjónustufulltrúa í umferðarþjónustu er vaktavinnustarf þar sem unnið er á vöktum milli kl. 06:30-22:00 alla daga vikunnar, allt árið um kring. Unnið er á þrískiptum vöktum yfir daginn.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sér til þess að allar nauðsynlegar upplýsingar um breytingar á veðri, aðstæðum eða færðskili sér tímanlega til viðbragðsaðila og vegfaranda.

  • Þjónusta við vegfarenda um færð og ferðaveður

  • Símasvörun á skiptiborði Vegagerðarinnar og í upplýsingasíma 1777

  • Meðhöndlun tilkynningar á umferdin.is, í smáskilaboðum og í tölvupósti

  • Ýmis tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf æskilegt eða sambærileg menntun

  • Metnaður til að veita góða þjónustu

  • Góð færni í mannlegum samskiptum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Góð almenn tölvufærni

  • Góð þekking á landafræði og veðurfræði, æskileg

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sem hluti af teymi

  • Geta til að starfa undir álagi og gott almennt heilbrigði

  • Öguð vinnubrögð, skipulagshæfni og metnaður í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar.

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.11.2024

Nánari upplýsingar veitir

Kristinn Þröstur Jónsson, kristinn.th.jonsson@vegagerdin.is

Sími: 5221619

Svanur Þorvaldsson, svanur.thorvaldsson@vegagerdin.is

Sími: 5221000

Sækja um

Er hægt að bæta efnið á síðunni?