Upplýsingamiðstöð Vestfjarða og Byggðasafn - Sumarstarfsmenn
Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði ásamt Byggðasafni óska eftir að ráða sumarstarfsmenn. Um er að ræða 100% störf frá 18. maí til loka ágúst 2026.
Helstu verkefni
- Að veita gestum upplýsingamiðstöðvar aðstoð og upplýsingar eftir þörfum, einkum varðandi Vestfirði en þó einnig um landið í heild. Einnig þarf að veita aðstoð í síma og skriflega (í tölvupósti).
- Að aðstoða við móttöku og dreifingu bæklinga og annars kynningarefnis.
- Almenn afgreiðsla og móttaka gesta á Byggðasafninu.
- Önnur verk sem forstöðumaður kann að fela starfsmanni.
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg og færni í öðru tungumáli mikill kostur
- Vera orðinn 18 ára
- Jákvætt hugarfar
- Góð þekking á staðháttum á Íslandi, einkum á Vestfjörðum æskileg
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2026. Umsóknum skal skilað til Heimis G. Hanssonar, forstöðumanns upplýsingamiðstöðvar á netfangið upplysingamidstod@isafjordur.is. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá.
Nánari upplýsingar veitir Heimir í síma 450-8060 eða í gegnum fyrrgreint netfang.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-