Sýslumaðurinn á Vestfjörðum — Skrifstofumaður á Ísafirði
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum auglýsir lausa til umsóknar stöðu þjónustufulltrúa í tímabundið starf á skrifstofu embættisins á Ísafirði frá 1.febrúar 2025 til og með 30. nóvember 2025.
Möguleiki er á framlengingu að ráðningartíma loknum.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Almenn afgreiðsla.
-
Samskipti og aðstoð við viðskiptavini.
-
Skrifstofu-, ritara- og gjaldkerastörf.
-
Önnur tilfallandi verkefni sem sinnt er hjá embættinu.
Hæfniskröfur
-
Reynsla af skrifstofustörfum æskileg.
-
Jákvæðni, þjónustulund og góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
-
Fumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi.
-
Metnaður og áreiðanleiki.
-
Góð almenn tölvukunnátta.
-
Góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti.
-
Almenn kunnátta í ensku. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
-
Hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Umsókn um starfið þurfa að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um meðmælendur auk annarra atriða sem máli kunna að skipta.
Umsóknarfrestur er til og með 19. desember 2024.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum á Vestfjörðum sem heyra undir ríkisvaldið. Þrjár starfsstöðvar eru innan embættisins:
Á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Starfsmenn eru 15 í 13,2 stöðugildum.
Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhugaverð og kalla á mikil og góð samskipti við viðskiptavini.
Sýslumenn eru í fremstu röð í stafrænni stjórnsýslu og hafa metnað til að veita skjóta og góða þjónustu.
Hjá embættinu er lagt upp úr góðum starfsanda og vinnuaðstöðu, símenntun og sveigjanleika í starfi.
Nánar má fræðast um embætti sýslumanna á vefnum www.island.is á slóðinni www.syslumenn.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Jónas B. Guðmundsson, jonas.gudmundsson@syslumenn.is
Gabríela Aðalbjörnsdóttir, gabriela@syslumenn.is