Sumarstarf í stuðningsþjónustu

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar sumarstarf í stuðningsþjónustu. Um er að ræða um 30% starf þar sem vinnutími er 17:15 til 20:00 suma virka daga, auk þess sem unnið er aðra hvora helgi. Starfið er frá byrjun júní til loka ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Starfið er afar fjölbreytt og gefandi.

Helstu verkefni

  • Félagslegur stuðningur
  • Samskipti við þjónustuþega
  • Aðstoð við innkaup/erindrekstur
  • Ýmis aðstoð við heimilisstörf skv. vinnuleiðbeiningum
  • Aðstoð við þrif á heimilum þjónustuþega skv. vinnuleiðbeiningum

Hæfniskröfur

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Samviskusemi og stundvísi
  • Áhugi á að vinna með fólki
  • Reynsla af umönnun er kostur
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og þolinmæði
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Bílpróf

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjölur/ VerkVest). Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2025.

Umsóknir skulu sendar til Hörpu Stefánsdóttur, deildarstjóra í félagsþjónustu á netfangið harpast@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar veitir Harpa, í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?