Stuðningsforeldri/fjölskylda – Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir traustum einstaklingum/fjölskyldum til að sinna hlutverki stuðningsfjölskyldu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Samningur um stuðning er gerður til eins árs í senn.

Hlutverk stuðningsfjölskyldu snýr meðal annars að því að taka barn/börn í sína umsjá í skamman tíma, t.d. eina til tvær helgar í mánuði, með það að markmiði að létta álagi á fjölskyldum og veita stuðning.

Þjónustan á sér annars vegar stoð í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og hins vegar barnaverndarlögum nr. 80/2002.

Hæfniskröfur:

  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Jákvæðni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi og reynsla af vinnu með börnum
  • Krafist er hreins sakavottorðs og góðra heimilisaðstæðna

Laun eru greidd skv. reglum velferðarþjónustu Vestfjarða um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra.

Áhugasöm eru hvött til þess að skila umsóknum til Þóru Marýjar Arnórsdóttur, deildarstjóra í málefnum fatlaðra á netfangið thoraar@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja stutt kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2026.

Nánari upplýsingar veitir Þóra Marý, í síma 450-8000 eða í gegnum tölvupóst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?