Starfsmaður í eldhús á Hlíf, íbúðum aldraðra
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf í eldhúsi á Hlíf, íbúðum aldraðra. Um er að ræða starf í tímavinnu aðra hverja helgi þar sem vinnutíminn er 10:30 til 13:30. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 4. janúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Meginverkefni
- Aðstoð við framreiða mat
- Leggja á borð, frágangur og uppvask
Hæfniskröfur
- Frumkvæði og drift
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).
Umsóknum skal skilað til Sesselju Önnu Ólafsdóttur, forstöðumanns stuðningsþjónustu á netfangið sesseljao@isafjordur.is eða á skrifstofu hennar á Hlíf. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Umsóknarfrestur er til og með 9. desember 2024. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sesselja í síma 450-8042 eða í gegnum ofangreint tölvupóstfang. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-