Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður - framtíðarstarf

Slökkvilið Ísafjarðarbæjar óskar eftir að ráða starfsmann í 100% starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sjúkraflutningar og bakvaktir eftir kl.16
  • Slökkvistarf og reykköfun
  • Björgunarstörf
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni

Menntun og hæfni:

  • Fullgilt sveinspróf, stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Löggilding slökkviliðsmanna
  • Gerð er krafa um EMT-A eða hærra og starfsleyfi frá Landlækni
  • Reynsla af störfum í slökkviliði og sjúkraflutningum
  • Aukin ökurétttindi C og BE flokkur vegna slökkviliðs- og sjúkraflutninga
  • Aukin ökuréttindi C1 vegna sjúkraflutninga
  • Stjórnunar- og eldvarnarnám frá Brunamálaskóla HMS er kostur
  • Góð íslensku og enskukunnátta, kunnátta á þriðja tungumáli er kostur
  • Færni í samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi
  • Hafa staðist þrekpróf og búa yfir hæfni í sundi
  • Góð tölvukunnátta

Launakjör eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Arnar Jónsson í gegnum tölvupóst (sigurdura@isafjordur.is) eða í síma 450-8000.

Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2026. Umsókn, ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréf skal senda til mannauðsstjóra á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?