Sjúkraflutningar - Þingeyri
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir tveimur heilsuhraustum og ábyrgum einstaklingum til starfa við sjúkraflutninga á Þingeyri. Óskað er eftir sjúkraflutningafólki eða starfsfólki sem eru tilbúin að mennta sig í sjúkraflutningum.
Um er að ræða starf sem krefst stutt viðbragðs því koma eingöngu til greina umsækjendur sem búa og starfa á Þingeyri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sjúkraflutningar
- Björgunarstörf
- Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Búseta og atvinna á Þingeyri.
- Ökuleyfi í flokki C1. Meirapróf CE er kostur.
- Góð íslensku og ensku kunnátta er skilyrði
- Geta sinnt líkamlega krefjandi starfi, vera heilsuhraustur bæði í góðu líkamlegu og andlegu formi.
- Góð samskiptahæfni, ábyrgð og hæfni til að vinna undir álagi.
- Hreint sakavottorð
- Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar greiðir grunnnámið EMT-B, með styrk frá heilbrigðisráðuneytinu, fyrir þá sem ráðnir verða. Námið fer fram í streymi ásamt verklegum lotum sem haldnar eru víðs vegar um landið. Næsta námskeið hefst 1. september 2026 sjá nánar á https://www.ems.is/is/namskeid/index
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2026. Umsóknir skulu sendar til Sigurðar A. Jónssonar slökkviliðsstjóra sigurdura@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og ökuskírteini. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Konur eru sérstaklega hvattar til að sækja um þar sem markmið mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar er að stuðla að jafnari kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.