Sjóvá – Ráðgjafi á Ísafirði
Umsóknarfrestur: 22. febrúar
Fullt starf, Hjá einkaaðilum
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum aðila í tímabundið starf í útibú okkar á Ísafirði til að sinna þjónustu og sölu til viðskiptavina. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf í skemmtilegu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- ráðgjöf og þjónusta vegna trygginga
- sala og upplýsingagjöf til núverandi og nýrra viðskiptavina
- greining á þörfum viðskiptavina og þátttaka í fjölbreyttum þjónustuverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- menntun sem nýtist í starfi
- reynsla af ráðgjafar- og söluverkefnum
- mikil færni í mannlegum samskiptum og söluhæfileikar
- framúrskarandi þjónustulund og jákvætt hugarfar
- frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Guðný Einarsdóttir útibússtjóri, steinunn.einarsdottir@sjova.is
Er hægt að bæta efnið á síðunni?