Orkubú Vestfjarða – Bókari

Orkubú Vestfjarða ohf. leitar að skipulögðum einstaklingi með góða þekkingu á bókhaldi, skilning á rekstri og fjárhag fyrirtækja og hefur ánægju af að vinna með öðrum.

Orkubú Vestfjarða er fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á sveigjanlegt og gott vinnuumhverfi. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fjárhags-, lánadrottna- og viðskiptamannabókhald
  • Afstemming og skil á virðisaukaskatti
  • Almennar afstemmingar og skil á gögnum til endurskoðenda
  • Þátttaka í umbótaverkefnum á fjármálasviði
  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af fjárhagsbókhaldi og virðisaukaskattsuppgjörum skilyrði
  • Þekking og reynsla af vinnu í fjárhagsbókhaldskerfum
  • Reynsla af uppgjörsvinnu, afstemmingum og skilum til endurskoðenda æskileg
  • Reynsla af launavinnslu er kostur
  • Almenn góð tölvukunnátta, góð kunnátta í Excel og reynsla af Business Central kostur
  • Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð
  • Góð samskiptafærni

Fríðindi í starfi

  • Styrkur til heilsueflingar

Frekari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdarstjóri fjármálasviðs - doa@ov.is

Sækja um

Er hægt að bæta efnið á síðunni?