Leikskólinn Tjarnarbær á Suðureyri – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla

Laust er til umsóknar starf leikskólakennara í 100% starf við leikskólann Tjarnarbæ á Suðureyri. Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann í leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari. 

Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 11. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi.

Tjarnarbær er tveggja deilda leikskóli. Einkunnarorð skólans er Virðing – Gleði – Sköpun með áherslu á náttúruna og umhverfið. Um er að ræða mjög skemmtilegt og gefandi starf, þar sem enginn dagur er eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf leikskólakennara
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí 2025. Umsóknir skulu sendar til Svövu Ránar Valgeirsdóttur leikskólastjóra á netfangið svavava@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar veitir Svava Rán í síma 450-8290 eða í gegnum ofangreint netfang.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Við þjónum með gleði til gagns

Er hægt að bæta efnið á síðunni?