Leikskólinn Eyrarskjól – Leikskólakennari/leiðbeinandi 60% starf

Hefur þú gaman að börnum?
Finnst þér gaman að leika þér með leir? Kubba? Skapa?
Finnst þér prumpubrandarar enn fyndnir?
Þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!

Kæri vinur/vinkona, vertu velkomin á Leikskólann okkar Eyrarskjól á Ísafirði! ☀️

Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstakling sem til er í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika.

Við erum að leita að leikskólakennurum eða leiðbeinendum í 60% starf sem getur hafið störf sem fyrst.

Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.

Leikskólinn Eyrarskjól er 5 kjarna leikskóli staðsettur á Ísafirði þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar.

Í Eyrarskjóli er skemmtilegt starfsfólk, einstök vinnustaðamenning og jákvæður skólabragur.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun ungra barna
  • Hafa gaman í vinnunni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk er í fríu fæði
  • Vinnustytting
Nánar um leikskólann og allar upplýsingar á heimasíðu Eyrarskjóls.

Sækja um

Er hægt að bæta efnið á síðunni?