Laus störf á leikskólanum Sólborg Ísafirði – Leikskólakennari / starfsmaður í leikskóla / stuðningsfulltrúi á deild
Leikskólinn Sólborg á Ísafirði auglýsir laus til umsóknar fjögur 100% störf leikskólakennara eða starfsmanns í leikskóla, en tvö þeirra eru tímabundin til 7. júlí 2026. Einnig er laust til umsóknar 60% starf stuðningsfulltrúa á deild. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Sólborg er fjögurra deilda leikskóli sem starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en í skólanum eru um 60 börn. Um er að ræða mjög skemmtileg og gefandi störf í lifandi starfsumhverfi. Vinnutími er 36 klst. á viku, boðið er upp á ókeypis fæði á vinnutíma og þá er hægt að sækja um stuðning vegna fjarnáms.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Góð íslenskukunnátta
Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari og verður þá um tímabundið starf að ræða til eins árs.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2026. Umsóknir skulu sendar til Helgu Bjarkar Jóhannsdóttur leikskólastjóra á netfangið solborg@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Helga Björk, í síma 450-8285 / 848-2097 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-