Land og skógur – Sérfræðingur í líffræðilegri fjölbreytni
Land og skógur leitar að öflugu starfsfólki til að vinna að uppbyggingu og vernd gróðurauðlinda á Íslandi með sjálfbærri landnýtingu, landgræðslu, nýskógrækt og friðun skóga til að efla hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri landnýtingu. Leitað er að sérfræðingi í líffræðilegri fjölbreytni.
Um fullt starf er að ræða sem hentar öllum kynjum. Starfið er óstaðbundið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða rannsóknavinnu um líffræðilega fjölbreytni í ýmsum vistkerfum með áherslu á líf í jarðvegi.
- Taka þátt í teymisvinnu vöktunarverkefna hjá Landi og skógi.
- Yfirsýn og þróun á mælingum á líffræðilegri fjölbreytni í vöktunarverkefnum Lands og skógar.
Hæfniskröfur
- Meistarapróf í líffræði eða skyldum fögum með sérstaka áherslu á jarðvegslíf.
- Þekking á greiningu lífvera í jarðvegi með DNA-raðgreiningartækni og tölfræðileg úrvinnsla slíkra gagna er skilyrði.
- Þekking og reynsla af teymisvinnu sem og góð samskiptahæfni eru skilyrði.
- Gott vald á almennri tölfræðilegri úrvinnslu æskilegt.
- Gott vald á ensku og íslensku er æskilegt.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu rannsókna-, eftirlits-, og fræðsluhlutverki við að vernda, endurheimta og bæta þessar auðlindir Íslands með uppgræðslu lands, ræktun nýrra skóga og með því að stuðla að sjálfbærri landnýtingu.
Land og skógur er með starfstöðvar í öllum landshlutum. Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun sem stuðli að starfsþróun og verðmætasköpun innan Lands og skógar og alls landgræðslu- og skógræktargeirans.
Land og skógur hefur hlotið jafnlaunavottun, innleitt styttingu vinnuvikunnar og Græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.
Um fullt starf er að ræða sem hentar öllum kynjum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Brynjar Skúlason, brynjar.skulason@landogskogur.is
Sími: 899-8755