VÍS - Starfsmaður á skrifstofu

Þjónustuskrifstofa VÍS á Ísafirði leitar að hressu og metnaðarfullu starfsfólki með brennandi áhuga á þjónustu í sumarstarf með möguleika á áframhaldandi starfi.

Í starfinu færðu tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snúa fyrst og fremst að þjónustu og ráðgjöf við viðskiptavini.

 

Við leggjum áherslu á fagmennsku, jákvætt viðmót og lausnamiðaða hugsun.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni
  • Framúrskarandi þjónustulund, ástríða og metnaður fyrir því að veita úrvals þjónustu
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Metnaður í því að gera sífellt betur og vinna að umbótum
  • Menntun sem nýtist í starfi

 

Það er mikið gleðiefni að sumarstarfsfólkið okkar leitar til okkar ár eftir ár og mörg starfa hjá okkur áfram.

 

Umsóknarfrestur er til og með 1.mars 2026. Við hvetjum öll þau sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum starfasíðuna okkar á www.vis.is

Nánari upplýsingar veita mannauðsráðgjafar í gegnum netfangið mannaudsmal@vis.is

Er hægt að bæta efnið á síðunni?