Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Starfsmaður við heimahjúkrun – Sumarafleysing

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar að ráða ófaglærða starfsmenn í sumarafleysingu á heimahjúkrunardeild á Ísafirði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin hlutverk starfsfólks er að heimsækja, aðstoða og annast um skjólstæðinga á heimilum þeirra. Vinnutími er á morgunvöktum á virkum dögum og á 4 klst kvöldvöktum. Unnið er aðra hverja helgi.

Hæfniskröfur

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Starfsreynsla æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Heiða Björk Ólafsdóttir

Tölvupóstur: heidabjork@hvest.is

Sími: 450 4500

Er hægt að bæta efnið á síðunni?