Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Hjúkrunarfræðingur í heimahjúkrun – Sumarafleysing

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til sumarafleysinga í heimahjúkrun sumarið 2026. Hluti af sumri kæmi einnig til greina.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingar í heimahjúkrun veita hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni.

Unnið er í dagvinnu.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Starfsreynsla æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Möguleiki er á að stofnunin aðstoði við öflun íbúðarhúsnæðis

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Heiða Björk Ólafsdóttir

Tölvupóstur: heidabjork@hvest.is

Sími: 450 4500

Er hægt að bæta efnið á síðunni?