Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Hjúkrunarfræðingur á Sjúkradeild á Ísafirði – Sumarafleysing
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða hjúkrunarfræðinga í sumarafleysingu á sjúkradeild á Ísafirði. Um er að ræða störf í júlí og/ eða ágúst. Styttri tímabil koma til greina.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 300 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingur sinnir almennum hjúkrunarstörfum á blandaðri sjúkradeild. Deildin sinnir auk þess sængurkonum og nýburum utan dagvinnu ljósmóður, annast göngudeild fyrir krabbameinslyfjagjafir og aðrar sérhæfðar lyfjagjafir auk þess að aðstoða við slysamóttöku á slysadeild utan dagvinnutíma. Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn hjúkrunarfræðing sem langar að breyta um umhverfi. Þetta er einnig kjörin staða fyrir þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun.
Á deildinni starfar öflugur hópur um 25 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í byrjun ágúst eða eftir samkomulagi.Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum meðmælenda.Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.02.2026