Heilbrigðisstofnun Vestfjarða — Framkvæmdastjóri mannauðs
Við leitum að framsýnum, jákvæðum og drífandi leiðtoga til að leiða mannauðssvið Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Leitað er að einstaklingi með mikinn áhuga og reynslu af mannauðsmálum. Framkvæmdastjóri mannauðs heyrir undir forstjóra og er hluti af framkvæmdastjórn. Á stofnuninni er lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, umbætur í rekstri og ánægju starfsfólks.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (www.hvest.is).
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Ábyrgð á að móta og leiða faglega mannauðsstjórnun
-
Tryggja faglegt verklag við ákvarðanatöku og framkvæmd um mannauðsmál
-
Virk þátttaka í stefnumótun, markmiðasetningu og árangursmælingum fyrir stofnunina
-
Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og annað starfsfólk þegar kemur að mannauðsmálum
-
Yfirumsjón með gerð stofnanasamninga, launaákvörðunum og stuðningur við launafulltrúa vegna launasetningar
-
Yfirumsjón með jafnlaunavottun og jafnlaunagreiningum
-
Mannaforráð með móttökuriturum, heilbrigðisgagnafræðingum og starfsfólki eldhúss
-
Frumkvæði og virk þátttaka í ýmsum nefndum og teymum, svo sem er varða öryggi, gæði jafnrétti og stofnanasamninga
-
Umsjón með árangursmælingum og könnunum m.a. um starfslíðan starfsmanna
Hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi; framhaldsmenntun æskileg
-
Víðtæk reynsla og þekking af mannauðsmálum er skilyrði
-
Stjórnunarreynsla er æskileg
-
Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu er æskileg
-
Þekking og reynsla af kjara- og stofnanasamningum æskileg
-
Áhugi og reynsla af umbótarstarfi og breytingarstjórnun
-
Góðir leiðtoga- og samskiptahæfileikar
-
Áreiðanleiki, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
-
Góð málakunnátta og færni til að setja fram mál í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum meðmælenda.
Utan vinnu eru lífsgæðin mikil. Tækifærin til útivistar eru allt um kring og stuttar vegalengdir til og frá vinnu. Næg leikskólapláss og góð menntun í boði á öllum skólastigum s.s. í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla.
Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu, sjá til dæmis laus störf á vef Ísafjarðarbæjar.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.01.2025
Nánari upplýsingar veitir
Lúðvík Þorgeirsson, ludvik@hvest.is
Sími: 4504500