Grunnskólinn á Þingeyri – Grunnskólakennarar, sérkennari, list, og verkgreinakennari og íþróttakennari
Grunnskólinn á Þingeyri auglýsir eftir metnaðarfullum og áhugasömum kennurum til starfa á komandi skólaári í eftirtalinn verkefni:
- Umsjón á elsta stigi, íslensku-, stærðfræði-, dönsku-, upplýsingatækni-, samfélagsfræði, náttúrufræðikennsla (80-100%).
- Sérkennsla (50%) - möguleiki á auknu starfshlutfalli með kennslu í öðrum greinum.
- Kennari í list- og verkgreinum (50–100%) - möguleiki er á auknu starfshlutfalli með kennslu í bóklegum greinum og/eða stuðningi.
- Íþróttakennari (50–80%) - sveigjanlegt starf með möguleika á samstarfi við íþróttafélag. Einnig er möguleiki á auknu starfshlutfalli með kennslu í bóklegum greinum, vali á elsta stigi og/eða stuðningi.
Grunnskólinn á Þingeyri er lifandi og jákvæður vinnustaður þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samstarf og vellíðan. Á næsta skólaári verða um 46 nemendur í 1.–10. bekk. Uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar er við lýði í skólanum og kennt er í anda Leiðsagnarnáms. Í skólanum er leitast við að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum og áhersla er lögð á skapandi nám.
Á Þingeyri búa um 300 íbúar og þar má finna íþróttahús, sundlaug, golfvöll, reiðskemmu, litla verslun og hótel. Umhverfi fjarðarins er rómað fyrir mikla náttúrufegurð og veðursæld. Í Ísafjarðarbæ öllum búa tæplega 4000 íbúar en Ísafjörður er í um 50 km fjarlægð frá Þingeyri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og stefnu skólans
- Skipuleggur kennslu sína í samræmi við markmið grunnskólalaga og með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda hverju sinni
- Fylgist með námi, þroska og félagslegu gengi nemenda sinna.
- Hefur forgöngu um aðgerðir ef eitthvað bregður út af varðandi nám eða annað
- Sér um vitnisburð og skýrslugerð varðandi nemendur.
- Fylgist með skólasókn nemenda og skráir hana samkvæmt fyrirmælum
- Er í samstarfi við foreldra og samfélag eftir því sem viðeigandi er
Menntunar og hæfniskröfur:
- Kennsluréttindi í grunnskóla
- Reynsla af kennslu kostur
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskipum og skipulagsfærni
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk stundvísi og samviskusemi
- Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti
- Góð færni á sviði tækni og nýsköpunar er æskileg
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.
Umsókn skal skilað til Ernu Höskuldsdóttur skólastjóra á netfangið ernaho@isafjordur.is og með henni skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréf. Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Allar nánari upplýsingar veitir Erna í síma 450-8370 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-