Grunnskólinn á Ísafirði – Matartæknir/matreiðslumaður

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar starf matartæknis/matreiðslumanns í mötuneyti skólans. Um er að ræða 100% starf frá 17. ágúst 2026. Næsti yfirmaður er skólastjóri.

Matartæknir/matreiðslumaður hefur yfirumsjón með eldhúsi, sér um matseld (heitan mat) og bakstur, skipuleggur matseðla allt að mánuð fram í tímann og annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum. Hann hefur jafnframt umsjón með þrifum í eldhúsi og er verkstjóri aðstoðarfólks í mötuneytinu. Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 400 nemendur. Um þessar mundir er hann í innleiðingu á verkefninu heilsueflandi grunnskóli.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Matreiðsla morgun–, hádegismats og nónhressingar
  • Gerð matseðla í samráði við skólastjóra og næringarfræðing
  • Hugar vel að hollustu og samsetningu matar í samráði við ráðleggingar frá Lýðheilsustöð og næringarfræðingi
  • Innkaup á matvælum og hreinlætisvörum
  • Hefur umsjón með því að tæki og búnaður í eldhúsi starfi eðlilega og lætur umsjónarmann skóla vita ef viðgerða/lagfæringa er þörf
  • Innkaup á eldhúsáhöldum í samráði við skólastjóra
  • Útbýr sérfæði fyrir einstaklinga sem þess þurfa

Hæfniskröfur:

  • Matreiðslu- eða matartæknimenntun og/eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af störfum í mötuneyti æskileg
  • Þekking á gerð matseðla og samsetningu fæðis samkvæmt viðmiðum Manneldisráðs
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að vinna á líflegum og skemmtilegum vinnustað
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Rík þjónustulund og sveigjanleiki

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2026. Umsóknir skulu sendar til Guðbjargar Höllu Magnadóttur, skólastjóra, á netfangið gudbjorgma@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Halla í síma 450-8300 eða í gegnum fyrrgreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?