Fræðslumiðstöð Vestfjarða – Náms- og starfsráðgjafi
Umsóknarfrestur: 19. febrúar
Fullt starf, Hjá einkaaðilum, Hlutastarf
Fræðslumiðstöð Vestfjarða auglýsir eftir náms- og starfsráðgjafa til að halda utan um náms- og starfsráðgjöf og verkefnastjórn, 50-100% stöðugildi.
Þekking á fullorðins- og framhaldsfræðslu er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2026. Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal senda Sædísi Maríu Jónatansdóttur, forstöðumanni Fræðslumiðstöðvarinnar, á netfangið saedis@frmst.is. Upplýsingar í síma 456-5025 eða 861-4408
Starfið er laust frá 1. mars 2026
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita ráðgjöf og upplýsingar um nám, starfsþróun og raunfærnimat
- Verkefnastjórn sem snýr að námi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun, náms- og starfsráðgjöf
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tungumálakunnátta og tölvufærni
Fræðslumiðstöð Vestfjarða er með starfsstöðvar á Ísafirði og Patreksfirði. Búseta í öðrum byggðakjörnum Vestfjarða kemur einnig til greina.
Er hægt að bæta efnið á síðunni?