Skipulags- og mannvirkjanefnd

451. fundur 24. febrúar 2016 kl. 08:00 - 09:50 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigurður Jón Hreinsson formaður
  • Sigurður Mar Óskarsson aðalmaður
  • Lína Björg Tryggvadóttir aðalmaður
  • Ásgerður Þorleifsdóttir aðalmaður
  • Inga Steinunn Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jón Kristinn Helgason varamaður
Starfsmenn
  • Ralf Trylla umhverfisfulltrúi
  • Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Asahláka í febrúar 2015 - vatnsflóð, lærdómsskýrsla, verksamningur við VSÓ ráðgjöf - 2015020033

Á 916. fundi bæjarráðs voru lögð fram drög að lærdómsskýrslu vegna flóðanna á Ísafirði í febrúar 2015, bæjarráð vísaði skýrslunni til umfjöllunar í skipulags- og mannvirkjanefnd.
Skýrslunni vísað til sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs og óskað eftir minnisblaði fyrir næsta fund nefndarinnar.

2.Dýrafjarðargöng - Deiliskipulag - 2016020061

Verkís, f.h. Vegagerðarinnar óskar eftir heimild Ísafjarðarbæjar til að láta gera deiliskipulag við báða jarðgangamunna væntanlegra Dýrafjarðarganga, sbr. bréf dags. 16.02.2016.
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt sbr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Beiðni um úthlutun landskika til fósturs - 2016020028

Rótarýklúbbur Ísafjarðar óskar eftir að fá úthlutað landskika í skógi til að fóstra skv. bréfi dags. 8. febrúar 2016.
Skipulags- og mannvirkjanefnd fagnar frumkvæði Rótarýklúbbs Ísafjarðar og öllum aðgerðum sem stuðla að bættu aðgengi og aðstöðu fyrir almenning á skógræktarsvæðum í sveitarfélaginu. Nefndin bendir á að samningar eru í gildi á flestum skógræktarsvæðum í Skutulsfirði. Hafa þarf samband við samningshafa vegna erindisins.

4.Dynjandi, endurskoðun á auglýsingu um friðlýsingu og mörkum náttúruvættisins - 2016020044

Umhverfisstofnun óskar eftir afstöðu Ísafjarðarbæjar til tillögu að stækkun náttúruvættisins Dynjanda og óskar eftir tilnefningu fulltrúa í samráðshóp. Bréf dags. 9. febrúar 2016.
Skipulags- og mannvirkjanefnd tekur jákvætt í stækkun náttúruvættisins Dynjanda í samráði við sveitarfélagið. Nefndin leggur til að umhverfisnefnd tilnefni fulltrúa í samráðshópinn.

5.Vinna um samræmda lóðaafmörkun - 2016010024

Bréf Guðjóns Bragasonar, sviðsstjóra lögfræði- og velferðarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, varðandi samræmda lóðaafmörkun. Bæjarráð vísar erindinu til skipulags- og mannvirkjanefndar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við nálgun á viðfangsefninu og óskar eftir að fá að fylgjast með framvindu verkefnisins.

6.Sjókvíaeldi í ísafjarðardjúpi - Háafell - 2016020056

Skipulagsstofnun óskar eftir umsögn um tillögu að matsáætlun fyrir framleiðslu á 6.800 tonnum af laxi í sjó í Ísafjarðardjúpi á vegum Háfells ehf.
Skipulags- og mannvirkjanefnd gerir ekki athugasemd við framkomna tillögu að matsáætlun.

Nefndin telur afleitt að enga stefnumörkun stjórnvalda er að finna um sjókvíaeldi á Vestfjörðum, fremur en annars staðar. Sérstaklega er þetta slæmt í ljósi þess að sveitarfélögin hafa ekki skipulagsvald yfir aðliggjandi strandsvæðum, fjörðum og flóum.
Að frumkvæði sveitarfélaga á Vestfjörðum og Fjórðungssambands var unnin nýtingaráætlun fyrir Arnarfjörð og í þessu tilfelli hefði slík áætlun verið til mikilla bóta.
Skipulags- og mannvirkjanefnd vill því ítreka þá skoðun sína að æskilegt er að sveitarfélög ráði skipulagi strandsjávar út að 1 sjómílu frá grunnlínu.

Inga S. Ólafsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 09:50.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?