Fræðslunefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
359. fundur 01. október 2015 kl. 08:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir formaður
  • Bragi Rúnar Axelsson varaformaður
  • Jónas Þór Birgisson aðalmaður
  • Martha Kristín Pálmadóttir aðalmaður
  • Auður Helga Ólafsdóttir varamaður
  • Elísabet Samúelsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurlína Jónasdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
  • Margrét Halldórsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Fundargerð ritaði: Sigurlína Jónasdóttir Skóla- og sérkennslufulltrúi
Dagskrá
Mættur áheyrnarfulltrúi fyrir grunnskóla: Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, fulltrúi skólastjóra.
Mættur áheyrnarfulltrúi fyrir leikskóla: Helga Björk Jóhannsdóttir fulltrúi skólastjóra. Bryndís Ósk Jónsdóttir fulltrúi foreldra boðaði forföll vegna veikinda.

1.Verkefnalisti fræðslunefndar - 2014030064

Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Fréttabréf grunnskóla 2015-2016 - 2015090015

Lagt fram fréttabréf frá Grunnskóla Önundarfjarðar.
Fræðslunefnd þakkar fyrir fróðlegt og skemmtilegt fréttabréf.

3.Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2015 - 2015020078

Lögð fram þingsályktunartillaga um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis til umsagnar og þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 19. október 2015.
Lagt fram til kynningar.

4.Ósk um aukningu á stöðugildum Eyrarskjól - 2015090024

Lagt fram bréf, dagsett 31. ágúst 2015, frá Guðríði Guðmundsdóttur, leikskólastjóra Eyrarskjóls, þar sem hún óskar eftir að fá að ráða starfsmann í 100% starfshlutfall, einnig lagt fram minnisblað, dagsett 29. september 2015, frá Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra Skóla- og tómstundasviðs, varðandi málið.
Málið var áður á dagskrá á 358. fundi fræðslunefndar.
Fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að beiðni um stuðning á Eyrarskjóli verði samþykkt í samræmi við eldri framkvæmd í svipuðum málum, enda sé stuðningur sá sami í öllum leikskólum sveitarfélagsins. Nefndin felur starfsmönnum að leggja fyrir næsta fund drög að endurskoðuðum vinnureglum um úthlutun á stuðningi við börn með sérþarfir í leikskólum sveitarfélagsins.






5.Sumarlokanir Eyrarskjóls og Sólborgar 2015 - 2015090088

Lagt fram minnisblað, dagsett 29. september 2015, frá Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra Skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar, vegna sumarlokunar Eyrarskjóls og Sólborgar sumarið 2015 og tillaga að sumarlokun 2016.
Fræðslunefnd felur foreldraráði Eyrarskjóls og Sólborgar að kanna hug foreldra gagnvart framkvæmd sumarlokunar 2015 og væntingar gagnvart sumarlokun 2016.

Fundi slitið.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?