Land og skógur — Mannauðsstjóri

Land og skógur leitar að öflugu starfsfólki til að vinna að uppbyggingu og vernd gróður- og jarðvegsauðlinda á Íslandi með landgræðslu, nýskógrækt og friðun skóga til að efla hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri landnýtingu. Leitað er að mannauðsstjóra. Starfið er óstaðbundið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stefnumótun í mannauðsmálum og eftirfylgni, greiningar og mannauðsmælikvarðar, stýrir mannauðsteymi Lands og skógar

  • Mat á mannaflaþörf, umsjón með ráðningum, móttöku og þjálfun nýliða, starfslýsingum, tilfærslum í starfi og starfslokum

  • Ferlar mannauðsmála, þróun, eftirfylgni og umbætur, uppfærsla starfsmannahandbókar, umsjón með starfsmannasamtölum

  • Þátttaka í stefnumótun Lands og skógar og seta í framkvæmdaráði

  • Stjórnendaráðgjöf ¿ stuðningur við stjórnendur

  • Starfsþróun og fræðsla

  • Öryggis- og vinnuverndarmál starfsmanna

  • Þátttaka í viðburðastjórnun (s.s. starfsmannafundir, ráðstefnur o.fl.)

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun eða starfsreynsla á sviði mannauðsstjórnunar eða önnur menntun eða starfsreynsla sem nýtist við mannauðsstjórnun

  • Útsjónarsemi, greiningarhæfni og skipulagsfærni

  • Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Sótt er um starfið á Starfatorgi. Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember nk.

Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu rannsókna-, eftirlits-, og fræðsluhlutverki við að vernda, endurheimta og bæta þessar auðlindir Íslands með uppgræðslu lands, ræktun nýrra skóga og með því að stuðla að sjálfbærri landnýtingu.

Land og skógur er með starfstöðvar í öllum landshlutum. Starf mannauðsstjóra er óstaðbundið, um fullt starf er að ræða.

Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun sem stuðli að starfsþróun og verðmætasköpun innan Lands og skógar og alls landgræðslu- og skógræktargeirans.

Land og skógur hefur hlotið jafnlaunavottun, innleitt styttingu vinnuvikunnar og græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.

Auglýsingin getur gilt í sex mánuði frá birtingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.11.2024

Nánari upplýsingar veitir

Ágúst Sigurðsson, agust.sigurdsson@landogskogur.is

Er hægt að bæta efnið á síðunni?