Grunnskólinn á Ísafirði - Skólastjóri

Ísafjarðarbær auglýsir stöðu skólastjóra við Grunnskólann á Ísafirði lausa til umsóknar. Leitað er að öflugum, metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga til að leiða þróttmikið skólastarf. Um er að ræða 100% starf frá 1. ágúst 2024.

Ísafjarðarbær er bær í sókn og hefur upp á margt að bjóða. Má þar nefna öfluga grunnskóla og leikskóla, menntaskóla, fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, öflugt tónlistar- og menningarlíf, eitt besta skíðasvæði landsins og endalausa möguleika á að njóta einstakrar náttúrfegurðar svæðisins. Í Ísafjarðarbæ öllum búa tæplega 4000 íbúar. Nánari upplýsingar er að finna á www.isafjordur.is.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Að veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
  • Að leiða samstarf nemenda, starfsmanna, heimila og skólasamfélagsins í heild
  • Að stýra skólanum og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, starfsmannamálum, fjárhagsáætlunum og rekstri

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara og kennslureynsla á grunnskólastigi
  • Viðbótarmenntun í stjórnun og/eða á sviði uppeldis- og menntunarfræða æskileg
  • Lipurð í samstarfi, sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar
  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri
  • Vilji og hugmyndaauðgi til að leita nýrra leiða í skólastarfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum bæði í mæltu máli og rituðu
  • Reynsla af þátttöku í þróunarstarfi kostur

Í dag eru nemendur Grunnskólans á Ísafirði um 380 og eru einkunnarorð skólans virðing, samhugur og menntun. Skólinn er byggður sem einsetinn skóli og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og innleitt kennsluaðferðir leiðsagnarnáms. Skólinn er í góðu og öflugu samstarfi við íþróttahreyfinguna og listaskóla bæjarins en á Ísafirði er fjölbreytt samfélag þar sem hreyfing og menning skipa stóran sess. Næsti yfirmaður skólastjóra er sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs.

Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsóknafrestur er til og með 22. apríl 2024 (ath. breyttur umsóknarfrestur).

Umsókn þarf að fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), afrit af leyfisbréfi til kennslu og prófskírteinum, ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu. Umsóknum skal skilað til mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar í netfangið baldurjo@isafjordur.is. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar um starfið veitir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, Hafdís Gunnarsdóttir, í síma 450-8000 og í gegnum tölvupóst: hafdisgu@isafjordur.is.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-

Er hægt að bæta efnið á síðunni?