Pöntunarakstur – Flateyri

Tilraunaverkefni í almenningssamgöngum, A10-Flateyri, hefst í janúar 2022. Verkefnið snýst um niðurgreiðslu á pöntunarakstri á leigubílum.

Ef íbúar vilja ferðast á milli Flateyrar og Ísafjarðar á milli kl. 06:30 og 22 á kvöldin, þó ekki hálftíma fyrir eða eftir áætlunarferð strætó, virkar pöntunarþjónustan svona:

1.    Hringið fyrst í einn af neðangreindum bílstjórum og athugið hvort þeir geti farið í ferðina.

Ástþór Sigurður Ágústsson: 893 1949
Björgvin Sveinson: 789 4444

Stígur Sophusson: 666 6950

2.    Skráið upplýsingar um ferðina á skráningarsíðu og fáið staðfestingu með tölvupósti til baka í símann.
3.    Sýnið bílstjóra staðfestinguna þegar hann kemur.
4.    Borgið startgjaldið.

Bílstjórinn sér svo um að rukka Ísafjarðarbæ um eftirstöðvar kostnaðar við ferðina.

  • Munið að þið þurfið að ná samkomulagi við bílstjóra um ferðina áður en þið farið í skráninguna og mælst er til þess að farþegar reyni að samnýta leigubílaferðir eins og kostur er t.d. með því að auglýsa ferð á Facebook.
  • Allar frekari upplýsingar um verkefnið má fá hjá verkefnastjóra á Flateyri, Hrönn Garðarsdóttur, hronng@isafjordur.is.
Árið 2022 samdi Ísafjarðarbær við Byggðastofnun um tilraunaverkefni í almenningssamgöngum mill Flateyrar og Ísafjarðar. Verkefnið felst í niðurgreiðslu á pöntunarakstri á leigubílum og mun standa til lok árs 2024 (eða þar til fjármagn Byggðastofnunar til verkefnisins er uppurið). Horft verður til reynslu af verkefninu sem fordæmisgefandi fyrir þjónustu við Suðureyri og Þingeyri.