Starfshópur um málefni leikskóla

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
3. fundur 06. mars 2024 kl. 14:30 - 15:30 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Finney Rakel Árnadóttir bæjarfulltrúi
  • Helga Björk Jóhannsdóttir leikskólastjórnandi
  • Hildur Sólmundsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Sigríður Brynja Friðriksdóttir fulltrúi ófaglærðra starfsmanna
Starfsmenn
  • Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
  • Guðrún Birgisdóttir skóla- og sérkennslufulltrúi
Fundargerð ritaði: Hafdís Gunnarsdóttir sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs
Dagskrá
Nanný Arna Guðmundsdóttir boðaði forföll.

1.Starfshópur um skipulag og starfsumhverfi í leikskólum Ísafjarðarbæjar 2024. - 2024010134

Kynnt minnisblað Guðrúnar Birgisdóttur skóla- og sérkennslufulltrúa dagsett 4. mars 2024. Á 2. fundi starfshópsins þann 7. febrúar sl. var starfsmönnum starfshópsins falið að senda út könnun til foreldra leikskólabarna þar sem óskað er eftir þeirra hugmyndum að breytingum á starfsumhverfi leikskóla. Jafnframt að afla upplýsinga um raun nýtingu dvalartíma á leikskólum. Könnun sem var send til forráðamanna barna í leikskólum Ísafjarðarbæjar 21. febrúar sl.
Starfshópur felur starfsmönnum að útfæra og kostnaðarmeta þær sviðssmyndir sem ræddar voru á fundinum.

Fundi slitið - kl. 15:30.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?