Þjónustuhópur aldraðra - 55. fundur - 3. apríl 2008

Mætt voru: Rannveig Þorvaldsdóttir, formaður, Geirþrúður Charlesdóttir, Margrét Geirsdóttir og Helgi Sigmundsson. Halldóra Hreinsdóttir boðaði forföll og ekki mætti varamaður í hennar stað. Auk þess sat fundinn Sædís María Jónatansdóttir, starfsmaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Sædís María Jónatansdóttir ritaði fundargerð.


Þetta var gert:


1. Könnun um heimaþjónustu og heimahjúkrun


Lögð fram til kynningar könnun þjónustuhóps aldraðra á heimaþjónustu og heimahjúkrun í Ísafjarðarbæ, sem leggja á fyrir á vordögum. Rætt um framkvæmd könnunarinnar.



2. Önnur mál


Rætt um sumarþjónustu í þjónustuíbúðum á Tjörn á Þingeyri.



3. Trúnaðarmál


Með vísan til 4. tölul. 8. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 vék fulltrúi félags eldri borgara af fundi undir þessum lið. 


Einstaklingum boðin pláss samkvæmt umræðum á fundinum.


Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 16:05.


Rannveig Þorvaldsdóttir, formaður.   


Geirþrúður Charlesdóttir 


Helgi Sigmundsson 


Margrét Geirsdóttir 


Sædís María Jónatansdóttir





Er hægt að bæta efnið á síðunni?