Skipulags- og mannvirkjanefnd - 416. fundur - 25. júlí 2014

Dagskrá:
1.  2014070017 - Tangagata 20 - lóð í fóstur.
 Lagt fram erindi dags. 14. júlí sl. frá eigendum í Tangagötu 20a, þar sem óskað er eftir að taka lóð í fóstur sem liggur á milli Tangagötu 20a og Tangagötu 22.
 Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir erindið.
   
2.  2014070018 - Tunguskógur 68, Ísafirði - umsókn um lóð.
 Lagt fram erindi dags. 14. júlí sl. frá Sigurði Gunnarssyni og Lindu Kristjánsdóttur þar sem sótt er um lóðina Tunguskógur 68, Ísafirði.
 Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að Sigurður Gunnarsson og Linda Kristjánsdóttir fái lóðina Tunguskógur 68, Ísafirði með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
   
3.  2012110034 - Skipulags- og mannvirkjanefnd - erindisbréf.
 Erindi síðast á dagskrá skipulags- og mannvirkjanefndar 9. júlí sl.
 Lagt fram.
   
4.  2012110034 - Umhverfis- og framkvæmdanefnd - erindisbréf.
 Lögð fram drög að erindisbréfi umhverfis- og framkvæmdanefndar.
 Lagt fram.
   
5.  2013060015 - Fossárvirkjun í Skutulsfirði - framkvæmdarleyfi.
 Lögð fram greinargerð Orkubús Vestfjarða ohf. vegna framkvæmdaleyfis í Fossárvirkjun. Erindi lagt fram á síðasta fundi Skipulags- og framkvæmdanefndar, 9. júlí sl.
 Lagt fram til kynningar.
   
6.  2013060014 - Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020 - breyting.
 Lögð fram erindi frá Sigurði Hreinssyni varðandi flugasamgöngur og erindi frá Gunnari Magnússyni frá Ytri Veðrará vegna friðunar lands Ytri Veðrarár í Önundarfirði.
 Erindinum vísað í matslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008 - 2020.
   
7. Önnur mál.
 2014050056 - Tækjahús og 30m mastur á Laugabólsfjalli - framkvæmdaleyfi.                 
 Lagt fram.                 
                    

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:05


Sigurður Jón Hreinsson   

Erla Rún Sigurjónsdóttir
Magni Hreinn Jónsson   

Ásgerður Þorleifsdóttir
Ingólfur Hallgrímur Þorleifsson   

Anna Guðrún Gylfadóttir 

Er hægt að bæta efnið á síðunni?